top of page

Fyrir hverja er Fjármálaræktin

Fjármálaræktin er fyrir öll sem vilja efla fjárhagslega heilsu sína, fá betri yfirsýn yfir fjármálin, greiða upp skuldir, stofna sparnað og fá reglulega aðstoð fjármálaráðgjafa við að ná markmiðum sínum.

Dæmi um þjónustu

Hjón með 3 börn

Hjón með 3 börn, eitt á leikskólaaldri, tvö á grunnskólaaldri. Bæði útivinnandi, meðaltekjur, útgjöld á pari við tekjur.

Markmið: Greiða niður yfirdrátt og koma sér upp varasjóði.

Hvað gerum við?

​Rýnum í tekjur og gjöld, leggjum til sparnaðarþætti, vinnum fjárhagsáætlun í samvinnu við hjónin og fylgjum eftir með ráðgjöf í 6 mánuði.

Ungt, barnlaust par

Ungt, barnlaust par, annað í vinnu með skóla, hitt útivinnandi.

Markmið: Kaupa íbúð

Hvað gerum við?

Yfirförum fjárhagsáætlunina með þeim, leggjum til sparnaðarþætti og fylgjum því eftir. Veitum þeim fræðslu í fjármálalæsi og fylgjum eftir heilbrigðum fjármálum og aðhaldi í sparnaði með mánaðarlegum tíma með fjármálaráðgjafa.

Vel stæð hjón með 2 börn og há útgjöld

Hjón með tvö börn, góðar tekjur og mikil útgjöld. Yfirdráttur, hár kostnaður við daglega neyslu og óreiða í fjármálum.

Hvað gerum við?

​Ítarleg greining á tekjum og gjöldum. Fjárhagsáætlun unnin í samvinnu við hjónin. Ráðgjöf um endurskipulagningu fjármála, sparnaðarþætti, uppgreiðsluáætlun og sparnaðaráætlun útbúin og mjög þétt eftirfylgni með vikulegum tímum með fjármálaráðgjafa.

bottom of page